Hæ hæ allir.. ef einhver kíkir hingað ennþá
Ég var eiginlega búin að gleyma þessari síðu í öllu því sem hefur verið að gerast hjá mér en mundi allt í einu eftir henni núna í kvöld og ákvað að kíkja og athuga hvort að einhver hefði tjáð sig. Hvað sé ég þá.. allt horfið!! Helv.. drasl allar þessar fríju síður, ekki hægt að treysta á þetta hnuss. Ég er að hugsa um að reyna að setja sögurnar inn aftur.. það er greinilega svo langt síðan allt hvarf að gömlu góðu sögurnar verða eins og nýjar hehe.
Þið verðið bara að sýna mér smá þolinmæði.. eins og oft áður.. ég stefni á að setja inn nýja sögu á hverjum degi allavega næstu viku

Og eins og áður þá megið þið endilega senda mér sögur eða efni í umræður.. eða "vandamál". Ekki að þetta eigi að vera einhver "femin"-umræðuþráður, frekar kannski mitt sjónarhorn á vandamálunum/umræðunum (ég veit alltof mikið um sambands- og kynferðismál hehe)
Ég er búin að vera ráðgjafi allra í kringum mig í ca 20 ár þannig að ég hef heyrt ótrúlegustu hluti

Vonandi getum við byggt upp skemmtilega og "hjálpsama" síðu í þetta sinn

Kveðja
Monique